Stjarnan fær KR í heimsókn á Samsungvöllinn í lokaleik 9. umferðar, heil umferð var spiluð í Bestu-deildinni í dag. Leikurinn hefst 19:15, búið er að tilkynna byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 2 KR
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar gerir fjórar breytingar á liði sínu frá 3-1 tapi gegn Vestra í síðustu umferð.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Þorri Mar Þórisson, Daníel Finns Matthíasson, Emil Atlason og Alex Þór Hauksson.
Úr byrjunarliði Stjörnunnar víkja þeir Guðmundur Baldvin, Kjartan Már, Sigurður Gunnar og Andri Rúnar. Kjartan Már Kjartansson er í leikbanni en Guðmundur Baldvin og Sigurður Gunnar eru báðir utan hóps í dag.
Óskar Hrafn gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 2-3 tapi gegn Fram í síðustu umferð.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Alexander Helgi Sigurðarson, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Ástbjörn Þórðarson.
Finnur Tómas er í leikbanni eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið gegn Fram. Róbert Elís og Aron Þórður taka sér báðir sæti á bekknum.
Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
19. Daníel Finns Matthíasson
22. Emil Atlason
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson
32. Örvar Logi Örvarsson
Byrjunarlið KR:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
10. Guðmundur Andri Tryggvason
11. Aron Sigurðarson (f)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
16. Matthias Præst
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
28. Hjalti Sigurðsson
Athugasemdir