Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Inzaghi um Al-Hilal: Mér líður vel hjá Inter
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Simone Inzaghi þjálfari Inter svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir úrslitaleik Meistaradedildarinnar sem fer fram annað kvöld.

Fréttamaður Sky Sports fylgdist með fundinum og greindi frá því að Inzaghi hafi ekki útilokað möguleg félagaskipti til sádi-arabíska stórveldisins Al-Hilal.

Sky Sport Italia ræddi við Inzaghi eftir fundinn og ítrekaði spurninguna um Al-Hilal.

„Mér líður vel hjá Inter. Hér hef ég allt sem ég þarf til að ná árangri. Eina sem ég er að hugsa um núna er að sigra úrslitaleikinn," svaraði Inzaghi.

„Ég er mjög stoltur af því að starfa fyrir þetta félag. Ég er stoltur af leikmannahópinum og samheldninni sem er í liðinu. Ég starfa með frábærum leikmönnum sem eru líka frábærar manneskjur. Við höfum sigrað og tapað saman en það sem stendur eftir er jákvæða tilfinningin um að hér eigum við heima."

Inter mætir PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld. Það verður í annað sinn á þremur árum sem lærisveinar Inzaghi komast í úrslitaleikinn eftir naumt tap gegn Manchester City 2023.

Inter vann ítölsku deildina í fyrra og endaði í öðru sæti í ár.

   30.05.2025 14:49
Sky segir Inzaghi taka við Al-Hilal eftir úrslitaleikinn

Athugasemdir