Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 14:59
Ívan Guðjón Baldursson
Frimpong kynntur sem nýr leikmaður Liverpool í dag
Mynd: EPA
Þýski fréttamaðurinn Florian Plettenberg greinir frá því að bakvörðurinn sókndjarfi Jeremie Frimpong verður kynntur sem nýr leikmaður Liverpool í dag.

Frimpong á að fylla í skarðið sem Trent Alexander-Arnold skilur eftir sig í varnarlínunni og er búist við að Florian Wirtz, góðvinur hans og liðsfélagi hjá Bayer Leverkusen, gangi til liðs við Liverpool fyrir metfé á næstu dögum.

Frimpong er 24 ára gamall og kostar ekki nema 30 milljónir punda. Liverpool þurfti að virkja riftunarákvæði til að kaupa hann.

Til samanburðar er talið að Wirtz muni kosta rúmlega 120 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner