Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 08:44
Elvar Geir Magnússon
Umboðsmaður Bruno á löngum fundi á hóteli í Sádi-Arabíu
Bruno Fernandes og fjölskylda.
Bruno Fernandes og fjölskylda.
Mynd: EPA
Umboðsmaður Bruno Fernandes, miðjumanns Manchester United, hefur verið í viðræðum við Al-Hilal um möguleg félagaskipti portúgalska miðjumannsins til Sádi-Arabíu.

Umboðsmaðurinn Miguel Pinho flaug til Ríad og fundaði augliti til auglitis við forráðamenn Al-Hilal. Samkvæmt heimildum Mirror stóð fundurinn langt fram eftir kvöldi og gekk vel.

Félagið hefur boðið Bruno gríðarlegt tilboð sem felur í sér 700 þúsund pund í vikulaun og um 200 milljónir punda yfir þrjú ár. Einnig er það tilbúið að greiða 100 milljónir punda til Manchester United fyrir leikmanninn.

Manchester United, þar sem liðið endaði í 15. sæti í ensku úrvalsdeildinni og tapaði Evrópudeildarúrslitaleiknum gegn Tottenham. Bruno sagði eftir tapið: „Ég mun vera hér þangað til félagið segir mér að það sé kominn tími til að fara. Fótbolti er stundum svona.”

Rúben Amorim, stjóri Manchester United, hefur verið mjög ákveðinn í svörum að hann vilji halda Bruno hjá liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner