
Noregur hefur endurheimt sína stærstu stjörnu fyrir leikinn gegn Íslandi í Þjóðadeildinni á morgun.
Caroline Graham Hansen lék ekki með liðinu í markalausa jafnteflinu á Þróttaravelli á dögunum þar sem hún var að glíma við meiðsli.
Caroline Graham Hansen lék ekki með liðinu í markalausa jafnteflinu á Þróttaravelli á dögunum þar sem hún var að glíma við meiðsli.
Þessi frábæri kantmaður er núna aftur í hópnum hjá Noregi og þurfa okkar stelpur að reyna sitt besta til að loka á hana í Þrándheimi á morgun.
„Við spiluðum mjög vel í síðasta leik gegn þeim. Það vantaði stóra pósta hjá þeim. Þar á meðal með Caroline Graham Hansen, sem er með betri leikmönnum í heimi. Hún verður á morgun og við þurfum að hafa góðar gætur á henni," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona Íslands, við Fótbolta.net í morgun.
Graham Hansen hefur verið á mála hjá Barcelona frá 2019 og hefur hún alls þar skorað 93 mörk í 184 leikjum. Á tímabilinu sem var að klárast gerði hún 16 mörk í 35 leikjum fyrir Katalóníustórveldið.
Athugasemdir