Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 13:51
Elvar Geir Magnússon
Fylgir A&B þáttunum eftir með hlaðvarpsseríunni Návígi
Gunnlaugur Jónsson og David Moyes við gerð A&B.
Gunnlaugur Jónsson og David Moyes við gerð A&B.
Mynd: Návígi
Bjarki Gunnlaugsson er sérstakur gestur í þáttunum.
Bjarki Gunnlaugsson er sérstakur gestur í þáttunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörtur Hjartarsson gerir þættina með Gulla.
Hjörtur Hjartarsson gerir þættina með Gulla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnlaugur Jónsson.
Gunnlaugur Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson.
Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Farnir eru af stað hlaðvarpsþættir sem tengjast sjónvarpsþáttunum A&B sem fjalla um tvíburana Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni og sýndir voru á Stöð 2. Fyrsti hlaðvarpsþátturinn er þegar kominn í loftið.

Þættirnir bera nafnið Návígi líkt og þættir sem Gunnlaugur gerði fyrir Fótbolta.net 2018. Í raun er því um að ræða nýja þáttaröð af Návígi.

„Hugmyndin vaknaði við vinnsluna á fyrsta A&B þættinum þá uppgötvuðum við að það væri mikið af sterku efni sem við þurfum að sleppa. Freyr Árnason yfirmaður eftirvinnslunnar hringdi í mig með þessa hugmynd hvort ég ætti ekki að búa til hlaðvarpsseríu upp úr 'outtakes' efninu og öllum þessu fjölmörgu viðtölum sem við tókum," segir Gunnlaugur Jónsson dagskrárgerðarmaður.

„Þegar við kláruðum seríuna þá byrjaði ég að vinna að þessu og ákvað fljótlega að breikka efnistökin og hugsa út fyrir Arnar og Bjarka. Stöð 2 Sport tók vel í þessa hugmynd að leyfa mér að nota viðtölin og mun TAL hýsa þáttaröðina sem fer einnig á Spotify og alla helstu veitur."

Endurkoma í fjölmiðla
„Ég fæ öflugan mann með mér í þáttagerðina því Hjörtur Hjartarson á endurkomu í fjölmiðla og hefur verið virkilega gaman að vinna þetta með honum og má segja að gamall draumur okkar sé að rætast," segir Gunnlaugur en alls verða þættirnir sex talsins og gestir verða með þeim.

„Bjarki Gull verður með okkur í tveim þáttum þar sem þemað verður atvinnumennskan, Gummi Ben gerir upp baráttu Arnars Gull gegn Óskari Hrafni frá yngri flokkum upp í meistaraflokk og við erum með sérstakan þátt tileinkaðan einvígi Víkings gegn Breiðabliki 2021-2023. Sjötti og síðasti þátturinn verður með öðru sniði þar sem ég ræði við teymið sem gerði A&B þáttaröðina og við munum ræða vítt og breytt um gerð íþróttaheimildarefnis."

„Við erum að slá nýjan tón, ég er búinn að 'producera' fjölmörg innslög úr tuga viðtala og við munum ræða þær og fer umræðan í ýmsar óvæntar áttir."

A&B þáttaröðin sló í gegn og því skemmtilegt að fá enn meira efni sem tengjast henni.

„Við fengum mjög sterk viðbrögð við þáttaröðinni og það hefur verið virkilega gaman að heyra frá fólki sem er ekki er endilega knattspyrnuáhugafólk sem skemmti sér konunglega yfir þáttunum," segir Gunnlaugur. Er eitthvað meira fótboltatengt í burðarliðnum frá honum?

„Það er ýmislegt á prjónunum, eins og oft í þessum bransa tekur tíma að fá svör en það er ekki ólíklegt að fer í aðra átt en tónlist eða knattspyrna í næsta sjónvarpsverkefni. Ég ætla svo ekki að útiloka að það verði framhald á þessu podcast verkefni."

Fyrsti þátturinn af nýju hlaðvarpsseríunni af Návígi er kominn á veiturnar en á heimasvæði Návígis á Facebook er svo aukaefni fyrir hvern þátt, haugur af myndum, úrklippum og myndböndum. Hér að neðan má svo til gamans sjá efnisyfirlitið úr þáttunum.


NÁVÍGI
Umsjón: Gunnlaugur Jónsson og Hjörtur Hjartarson

Þáttur 1: Akranes
Meðal efnis:
Bikarúrslitaleikir sem lið ÍA fór í 1982-84
Pétur Péturs kemur heim 1986 aðeins 27 ára gamall
Of mikið álag að byrja ungir að spila með meistaraflokk
Danshópurinn HEMME tekur þátt í freestyle keppninni árið 1989
Einvígi ÍA og Feyenoord árið 1993
U2 tónleikar í Rotterdam

Viðmælendur: Arnar og Bjarki, Sturlaugur Haraldsson, Lárus Orri Sigurðsson, Þórður Guðjónsson, Pétur Pétursson, Jón Gunnlaugsson, Gummi Ben, Willum Þór Þórsson, Guðmundur Hreiðarsson, Ríkharður Daðason, Hafþór Birgisson, Krissý Jónsdóttir, Elfa Sif Logadóttir, Rósant Birgisson, Rúnar Bjarnason, Arnar Jónsson og fleiri.

Þættir 2-3: Bjarki Gull & MENNSKAN
Sérstakur gestur: Bjarki Gunnlaugsson

Meðal efnis:
David Moyes (eldri) er Íslandsvinur númer 1
Arnar Grétars fór á reynslu hjá Man Utd árið 1989 og gekk til liðs við Glasgow Rangers sama ár.
Landsliðsferill Arnars og Bjarka
Giovanni van Bronckhorst um feril sinn (Glasgow Rangers, Arsenal, Barcelona)
David Moyes og fyrstu skrefin í þjálfun með Preston
Bjarki Gull um veru sína í Preston og hvernig kom til að hann hætti í atvinnumennsku.
Ofur umbarnir David Lockwood og David Manasseh um atvinnumennskuna
Matt Elliott og Gerry Taggart um Arnar Gull

Viðmælendur: Arnar og Bjarki, Arnar Grétarsson, Kenny Moyes, David Moyes, Guðni Bergsson, Giovanni van Bronckhorst, Logi Ólafsson, Gunnlaugur Sölvason, Guðmundur Hreiðarsson, Matt Elliott, Gerry Taggart, David Lockwood, David Manasseh, Kristinn Kjærnested og fleiri.

Þættir 4-5: Arnar Gull vs Óskar Hrafn
Sérstakur gestur: Gummi Ben

Meðal efnis:
Úrslitaleikur ÍA-KR í 3. flokki 1989
Óskar vs A&B í meistaraflokki 1992
Arnar og Bjarki byrja óvænt í þjálfun 2006
Óskar Hrafn og ótrúlegur uppgangur Gróttu
Arnar Gull og Óskar Hrafn gera upp einvígi Breiðabliks og Víkinga 2021-2023

Viðmælendur: Arnar og Bjarki, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Vilhjálmur Birgisson, Willum Þór Þórsson, Logi Ólafsson, Bjarni Guðjónsson, Heimir Gunnlaugsson, Kristinn Kjærnested, Magnús Örn Helgason, Magnús Agnar Magnússon, Lárus Orri Sigurðsson, Jón Páll Leifsson og fleiri.

Þáttur 6: GERÐ ÍÞRÓTTAHEIMILDAÞÁTTA
Gunnlaugur Jónsson ræðir við A&B teymið um gerð íþróttaheimildaefnis

Garðar Örn framleiðenda
Sigurð Má Davíðsson tökumann
Freyr Árnason yfirmann eftirvinnslu


Athugasemdir