Kemur með góða veðrið til Vestmannaeyja
Heimir Guðjónsson þjálfari FH svaraði spurningum eftir 2-1 tap á útivelli gegn ÍBV í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 1 FH
FH leiddi 0-1 í leikhlé en Eyjamenn jöfnuðu í síðari hálfleik og sigruðu leikinn svo í uppbótartíma. Þetta er svekkjandi tap fyrir FH sem var talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og fékk einnig góð færi til að skora í síðari hálfleik.
„Við töpuðum þessu í uppbótartíma því við gátum ekki varist löngu innkasti nógu vel. Aðal vonbrigðin eru seinni hálfleikurinn, við sköpuðum mjög góð færi í fyrri hálfleik og vorum klaufar að vera ekki með stærri forystu í leikhlé. Við töluðum um það að 1-0 væri hættuleg forysta en mættum bara aldrei í þennan seinni hálfleik," sagði Heimir svekktur.
„Við spiluðum á sunnudaginn, erum að spila í dag í Eyjum og eigum svo Aftureldingu strax næsta sunnudag. Í seinni hálfleiknum í dag voru menn farnir að hugsa um leikinn gegn Aftureldingu. Þeir hugsuðu að þeir gætu sloppið með 70% vinnuframlag í seinni hálfleiknum í dag en þannig virkar ekki fótbolti og okkur var refsað."
FH er í neðri hluta Bestu deildarinnar með 10 stig eftir 9 umferðir. Restina af viðtalinu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir