Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
„Sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni"
Túfa: Að mínu mati besti leikmaður deildarinnar
Sverrir Páll: Við getum stigið upp og skorað mörkin
Láki fann fyrir létti: Vicente breytti leiknum
Magnús Már: Fullt af dómum sem sérfræðingar mega skoða
Bjarni Aðalsteins: Ég hef aldrei spilað svona leik áður
Rúnar Kristins: 12 mínútur í uppbótartíma ég hef aldrei upplifað það áður
Heimir Guðjóns ósáttur með vinnuframlagið
Alli Jói: Úrslitin eftir 90 mínútur ljót
Haddi: Samdi við Rúnar Kristins
Sigurvin Ólafs: Sóknin er sjóðandi heit
Ómar Björn heppinn að fá ekki rautt: Þarf maður ekki lukku í þessu?
Viktor Jóns: Æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur
Dóri Árna: Sjá það allir sem eru á vellinum nema fjórir menn
Sölvi: Vorum til í slagsmál og með yfirhöndina í návígjum
Davíð Smári: Komust upp með að væla og liggja í grasinu
„Bara frábært" að vera komin aftur í landsliðið
Tilbúin í nýja áskorun - „Verðið bara að bíða eins spennt og ég"
   fim 29. maí 2025 16:56
Elvar Geir Magnússon
Davíð Smári: Komust upp með að væla og liggja í grasinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Maður má ekki segja það sem maður hugsar en ég er ógeðslega svekktur," segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, eftir 0-1 tap liðsins gegn Víkingi í toppslag Bestu deildarinnar. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu og Davíð var pirraður að leik loknum.

„Mér fannst við í það minnsta eiga meira skilið en þeir úr þessum leik."

Lestu um leikinn: Vestri 0 -  1 Víkingur R.

Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmdi leikinn og Davíð var ekki ánægður með dómarateymið í dag. Hann var spurður út í rangstöðu sem var ranglega dæmd á hans lið í hættulegri sókn.

„Ég ætla ekki að kommenta neitt á það. Mér fannst þeir fá allt, allar aukaspyrnur sem þeir báðu um og komust upp með að væla og liggja í grasinu. Ég er stoltur af mínu liði. Við þvingum Víkinga í fimm manna varnarlínu og erum betri áður en þeir fá þetta víti."

Arnór Borg Guðjohnsen, sem kom til Vestra frá FH, er á meiðslalistanum en hann fór meiddur af velli í leik á dögunum.

„Hann er tognaður aftan í læri og ég veit ekki hvað þetta er langur tími, fjórar vikur eða eitthvað," segir Davíð.
Athugasemdir
banner
banner