Rúben Amorim þjálfari Manchester United segist vera vongóður um að halda fyrirliðanum Bruno Fernandes hjá félaginu í sumar þrátt fyrir gylliboð frá Al-Hilal.
Sádi-arabíska stórveldið er sagt vera reiðubúið til að bjóða 100 milljónir punda fyrir Bruno, sem myndi fá 700 þúsund pund í skattfrjáls vikulaun hjá félaginu. Það er um það bil fimmföldun á núverandi útborguðum launum leikmannsins.
„Mín tilfinning er að Bruno vill vera áfram hjá félaginu. Hann hefur sagt nei við mikið af tilboðum," sagði Amorim þegar hann var spurður út í málið í dag. „Félagið getur notað aðrar leiðir til að skapa pening.
„Mér líður eins og hann vilji klárlega vera áfram hjá Man Utd, en það er aldrei að vita."
30.05.2025 08:44
Umboðsmaður Bruno á löngum fundi á hóteli í Sádi-Arabíu
Athugasemdir