Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 17:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Þróttur á toppinn eftir þægilegan sigur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 4 - 1 Völsungur
1-0 Aron Snær Ingason ('14)
1-1 Ismael Salmi Yagoub ('17)
2-1 Liam Daði Jeffs ('21)
3-1 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('74)
4-1 Viktor Andri Hafþórsson ('82)

Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 -  1 Völsungur

Þróttur R. tók á móti Völsungi í fyrsta leik fimmtu umferðar deildartímabilsins í Lengjudeild karla og skópu heimamenn þægilegan sigur.

Aron Snær Ingason tók forystuna á fjórtándu mínútu en Ismael Salmi Yagoub jafnaði skömmu siðar eftir slæm varnarmistök hjá Hlyni Þórhallssyni.

Þróttarar voru sterkari aðilinn og endurheimtu forystuna þegar Liam Daði Jeffs skoraði auðvelt mark eftir góðan undirbúning frá Aroni Snæ, sem var þar með kominn með mark og stoðsendingu.

Þróttarar voru talsvert sterkari aðilinn og komust nokkrum sinnum nálægt því að bæta við marki áður en Vilhjálmi Kaldal Sigurðssyni tókst það loks með glæsilegu skoti utan teigs á 74. mínútu. Fram að því hafði Ívar Arnbro Þórhallsson markvörður staðið sig feykilega vel, en það dugði ekki til.

Viktor Andri Hafþórsson gerði fjórða og síðasta mark heimamanna svo lokatölur urðu sanngjarn 4-1 sigur.

Þróttur fer upp í tíu stig og hirðir toppsæti Lengjudeildarinnar með þessum sigri, á meðan Völsungur situr eftir með sex stig.
Athugasemdir