Rúnar Þór Sigurgeirsson lék allan leikinn í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Willem II sem heimsótti Telstar í úrslitaleik um sæti í efstu deild hollenska boltans á næstu leiktíð.
Willem er í fallbaráttu efstu deildar á meðan Telstar er í toppbaráttu næstefstu deildar og eigast liðin við í úrslitaleik umspilsins.
Rúnar Þór skoraði sjálfsmark í dag en lokatölur urðu 2-2 á heimavelli Telstar. Seinni leikurinn fer fram á heimavelli Willem 1. júní.
Leikurinn var nokkuð jafn í dag og verður áhugavert að fylgjast með seinni leiknum um helgina. Rúnar er mikilvægur hlekkur í liði Willem og verður líklega aftur í byrjunarliðinu.
Hlynur Freyr Karlsson var þá í byrjunarliði Brommapojkarna sem tapaði heimaleik gegn Djurgården í efstu deild sænska boltans. Þetta var fimmti tapleikurinn í röð hjá Brommapojkarna og er liðið með 10 stig eftir 11 umferðir - einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.
Að lokum var Eggert Aron Guðmunsson í byrjunarliði Brann sem tapaði stórt á heimavelli gegn Molde í efstu deild norska boltans.
Eggert Aron spilaði fyrstu klukkustund leiksins og var skipt af velli í stöðunni 0-2. Freyr Alexandersson er þjálfari Brann og horfði hann á sína menn tapa með þriggja marka mun.
Brann er i þriðja sæti deildarinnar eftir tapið, með 20 stig eftir 10 umferðir - heilum níu stigum fyrir ofan stórlið Molde sem hefur farið illa af stað á tímabilinu.
Miðað við tölfræði leiksins voru lærlingar Freys ótrúlega óheppnir að tapa. Þeir fengu urmul færa sem fóru forgörðum á meðan gestirnir nýttu þau fáu og erfiðu tækifæri sem gáfust.
Telstar 2 - 2 Willem II
Brommapojkarna 0 - 1 Djurgarden
Brann 0 - 3 Molde
Athugasemdir