Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Gumma svaraði fyrir Selfoss
Kvenaboltinn
Mynd: Selfoss
Álftanes 1 - 2 Selfoss
1-0 Nanna Lilja Guðfinnsdóttir ('26 , Mark úr víti)
1-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('31 )
1-2 Guðmunda Brynja Óladóttir ('68 )

Selfoss heimsótti Álftanes í eina leik gærdagsins í 2. deild kvenna.

Álftnesingar tóku forystuna í fyrri hálfleik þegar Nanna Lilja Guðfinnsdóttir skoraði úr vítaspyrnu, en gleði heimakvenna var skammlíf.

Hin leikreynda Guðmunda Brynja Óladóttir svaraði með jöfnunarmarki fimm mínútum síðar og sá svo sjálf um að skora sigurmarkið í síðari hálfleik.

Lokatölur urðu því 1-2 þökk sé Gummu og er Selfoss áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Selfoss á tólf stig eftir fjórar umferðir á meðan Álftanes situr eftir með þrjú stig eftir þrjár umferðir.

Álftanes Karen Emma Möinichen (m), Nanna Lilja Guðfinnsdóttir (83'), Matthildur Inga Traustadóttir, Kara Sigríður Sævarsdóttir, Guðrún Nanna Bergmann (59'), Klara Kristín Kjartansdóttir, Þóra María Hjaltadóttir, Erika Ýr Björnsdóttir, Ásthildur Lilja Atladóttir, Hafdís Marvinsdóttir (59'), Rósa María Sigurðardóttir
Varamenn Nanna Sif Guðmundsdóttir, Eydís Lilja Th. Guðmundsdóttir (59'), Viktoría Skarphéðinsdóttir (83'), Alba Sólveig Pálmarsdóttir, Lóa Hallgrímsdóttir, Birna Grímsdóttir (59'), Thelma Guðrún Guðmundsdóttir

Selfoss Karen Rós Torfadóttir (m), Guðmunda Brynja Óladóttir, Embla Dís Gunnarsdóttir, Brynja Líf Jónsdóttir, Lovísa Guðrún Einarsdóttir, Anna Laufey Gestsdóttir (72'), Magdalena Anna Reimus, Védís Ösp Einarsdóttir, Írena Björk Gestsdóttir, Sara Rún Auðunsdóttir (72'), Olga Lind Gestsdóttir (78')
Varamenn Ásdís Embla Ásgeirsdóttir, Katrín Ágústsdóttir (78), Bryndís Halla Ólafsdóttir, Hildur Eva Bragadóttir (72), Thelma Sif Halldórsdóttir, Ásdís Erla Helgadóttir, Auður Helga Halldórsdóttir (72)
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
Athugasemdir
banner