Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Líklegt byrjunarlið Íslands - Nokkur spurningamerki
Icelandair
EM KVK 2025
Glódís er klár í slaginn.
Glódís er klár í slaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen.
Sandra María Jessen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Noregi á morgun í mikilvægum leik í Þjóðadeildinni. Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, hefur þurft að gera tvær breytingar á hópnum eftir að hann var upprunalega valinn en Amanda Andradóttir og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir meiddust. Inn í þeirra stað komu Fanndís Friðriksdóttir og Arna Eiríksdóttir.

Allar þær sem eru í hópnum núna æfðu á Lerkendal leikvanginum í Þrándheimi í morgun og það sem er jákvæðast er að Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, er mætt aftur eftir að hafa misst af síðasta verkefni.

Við spáum því að Glódís komi auðvitað inn í byrjunarliðið og að Ingibjörg Sigurðardóttir verði með henni í hjarta varnarinnar.



Guðrún Arnardóttir færi þá sig yfir í hægri bakvörðinn og Sædís Rún Heiðarsdóttir verði í þeim vinstri. Cecilía Rán Rúnarsdóttir verði áfram í markinu.

Einn stærsti hausverkurinn er hver eigi að vera á miðjunni með vinkonunum Alexöndru Jóhannsdóttur og Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Valið stendur líklega á milli Dagnýjar Brynjarsdóttur og Hildar Antonsdóttur, en við spáum því að hin reynslumikla Dagný muni byrja.

Þá er líka spurning hver verður í fremstu víglínu? Sveindís Jane Jónsdóttir og Hlín Eiríksdóttur eru mjög líklegar en við spáum því að Sandra María Jessen verði með þeim. Sandra kemur inn í þetta verkefni sjóðandi heit eftir að hafa gert sex mörk í þremur síðustu leikjum Þórs/KA.

Leikurinn á morgun hefst 16:00 á íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.
Athugasemdir