Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Sveindís hafði mikinn áhuga á tveimur félögum
Valdi Angel City fram yfir Manchester United
Icelandair
EM KVK 2025
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís er í lykilhlutverki hjá íslenska kvennalandsliðinu.
Sveindís er í lykilhlutverki hjá íslenska kvennalandsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með Wolfsburg.
Í leik með Wolfsburg.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Valdi ekki auðvelda kostinn en þann kost sem hún taldi rétt fyrir sig.
Valdi ekki auðvelda kostinn en þann kost sem hún taldi rétt fyrir sig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan öfluga Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Hún fór líka langt í viðræðum við enska stórliðið Manchester United líka en ákvað á endanum að velja frekar að fara til Los Angeles og hefja nýjan kafla þar.

Sveindís sagði frá þessu í hlaðvarpsþætti hér á Fótbolta.net í gærkvöldi. Hún settist niður með fréttamanni á hóteli landsliðsins í Þrándheimi þar sem landsliðið spilar gegn Noregi á morgun.

„Það hefur tekið smá tíma að taka ákvörðunina. Ég var ekkert rosalega spennt fyrir þessu fyrst þar sem þetta er svo langt í burtu. Ég var mjög spennt fyrir félaginu en það er langt til Los Angeles. Svo fundaði ég meira og meira með félaginu og komst að þeirri ákvörðun að ég væri rosalega spennt fyrir þessu og langaði að prófa þetta," sagði Sveindís.

Sveindís hefur síðustu ár spilað með Wolfsburg í Þýskalandi en hún fékk ekki rosalega stórt hlutverk á nýafstöðnu tímabili. Hún var ákveðin í því að prófa eitthvað annað.

„Ég hefði getað farið auðveldari leið og valið eitthvað nær fjölskyldunni, en þetta var það sem ég vildi gera og ákvað að prófa þetta. Af hverju ekki?" sagði Sveindís en Angel City fundaði fyrst með íslensku landsliðskonunni fyrir um hálfu ári síðan.

„Ég hélt að ég myndi aldrei fara þangað og var eiginlega búin að segja nei við þessu. Sá sem er yfirmaður fótboltamála hjá þeim vildi rosa mikið fá mig á fund og ég ákvað að taka fundinn. Svo bara breyttist skoðun mín mjög hratt eftir þennan fyrsta fund og boltinn fór að rúlla."

„Ég held að þau hafi verið mjög góð að selja þetta. Félagið er með mjög háleit markmið, sömu markmið og ég. Þau vilja vinna deildina og eru með fínan hóp í það. Allt í kringum þetta er í hæsta klassa, ótrúlega flott. Að þetta sé líka í Los Angeles er ekki að draga þetta niður. Þetta er nýtt félag og ég er tilbúin að prófa eitthvað nýtt," sagði Sveindís en það var eitthvað sem togaði hana til Los Angeles. Þetta er mjög spennandi félag og mjög spennandi borg, þó hún sé langt í burtu frá Íslandi.

Var líka í viðræðum við Man Utd
Það voru fleiri félög sem sýndu Sveindísi áhuga og þar á meðal Manchester United, eitt stærsta félag Englands. Á endanum stóð þetta á milli Angel City og United, stór félög í tveimur af sterkustu deildum heims.

„Ég held að þetta hafi komið fólki skemmtilega á óvart. Ég held að enginn hafi verið að pæla í því að ég myndi fara til Bandaríkjanna," sagði Sveindís en flestir voru nú að giska á að hún myndi fara til Englands. Þar var hún líka orðuð við Arsenal og Tottenham.

„Þetta var mest England en það var líka alveg pæling að fara þangað. Það hefði verið mjög næs fyrir mig þar sem kærastinn minn býr þar. Það hefði verið auðvelt en ég nenni engu svona auðveldu," sagði Sveindís létt.

„Ég sýndi ekki öllu áhuga. Ég fékk beiðnir um fund með nokkrum félögum en ég vildi gera þetta eins auðvelt og ég gat fyrir mig sjálfa. Ég tók bara fundi með félögum sem ég sá fyrir mér að ég gæti spilað í og bætt mig. Ég vildi fara í topplið. Ég hafði mikinn áhuga á tveimur félögum og Angel City var eitt af þeim. Hitt félagið var á Englandi."

Geturðu sagt hvað hitt félagið var?

„Ég held að fólk viti það alveg," sagði Sveindís og svaraði því játandi þegar hún var spurð hvort það væri Man Utd.

„Ég fór bara alla leið með Angel City og United, og þurfti svo að taka ákvörðun. Eitt var öruggi kosturinn og hitt var aðeins meiri áhætta; aðeins lengra í burtu," sagði Sveindís sem kann vel við það núna að stíga út fyrir þægindarrammann. En var ekki erfitt að hafna United?

„Já, já. Það var allt geggjað við að fara til Englands og kvennaboltinn er stór þar, er að stækka líka. Ég hugsaði að ég gæti prófað þetta eftir tvö og hálft ár ef ég fíla mig ekki í Ameríku. Mér fannst þetta vera tíminn til að prófa þetta. Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu. Það var einhver tilfinning sem leiddi mig til Ameríku núna. Þetta var tíminn fyrir mig fannst mér."

Hægt er að hlusta á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.
Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna
Athugasemdir