Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að viðræður Steven Gerrard við Rangers hafi ekki gengið upp. Gerrard tekur því ekki við stjórn á Rangers í annað sinn á ferlinum.
Rangers er í leit að arftaka fyrir Philippe Clement og leit Gerrard út fyrir að vera líklegur, en verður ekki ráðinn. Gerrard stýrði Rangers fyrir þremur og hálfu ári síðan en hefur verið án starfs síðan í lok janúar þegar hann fór frá Al-Ettifaq eftir slakt gengi í Sádi-Arabíu.
Skoska stórveldið er að skoða nokkra kosti fyrir þjálfarastarfið og er talið að Davide Ancelotti, sonur Carlo, sé líklegastur til að hljóta ráðninguna.
Russell Martin, Francesco Farioli og Marco Rose eru einnig taldir vera líklegir kostir fyrir starfið. Martin var síðast við stjórnvölinn hjá Southampton, Farioli hjá Ajax og Rose hjá RB Leipzig.
Athugasemdir