Trent Alexander-Arnold mun ganga til liðs við Real Madrid á sunnudaginn, 1. júní, eftir að Liverpool samþykkti að losa hann út úr samningi sínum gegn greiðslu.
Sagt er að kaupverðið, fyrir að fá leikmanninn mánuði áður en samningur hans átti að renna út, sé 10 milljónir evra (um 8,4 milljónir punda) en spænska félagið segir upphæðina lægri.
Sagt er að kaupverðið, fyrir að fá leikmanninn mánuði áður en samningur hans átti að renna út, sé 10 milljónir evra (um 8,4 milljónir punda) en spænska félagið segir upphæðina lægri.
Samningurinn tryggir að enski landsliðsmaðurinn geti spilað með Real Madrid í HM félagsliða sem fer fram í Bandaríkjunum og hefst 14. júní.
Alexander-Arnold, sem er 26 ára, hefur verið hjá Liverpool síðan hann var sex ára gamall og hefur unnið fjölda titla með félaginu, þar á meðal tvo Englandsmeistaratitla, Meistaradeildina og FA-bikarinn. Hann hefur skorað 23 mörk og gefið 86 stoðsendingar í 352 leikjum fyrir félagið.
Hann hafði áður staðfest að hann myndi yfirgefa Liverpool í sumar til að takast á við „nýja áskorun“ og þróast „sem persóna og leikmaður“. Xabi Alonso er tekinn við sem stjóri hjá Real Madrid eftir tímabil þar sem félagið vann ekki titil.
Athugasemdir