
Þór 4 - 1 Fylkir
1-0 Clement Bayiha ('14)
1-1 Tumi Fannar Gunnarsson ('54)
2-1 Ibrahima Balde ('55)
3-1 Sverrir Páll Ingason ('90)
4-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('92)
1-0 Clement Bayiha ('14)
1-1 Tumi Fannar Gunnarsson ('54)
2-1 Ibrahima Balde ('55)
3-1 Sverrir Páll Ingason ('90)
4-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('92)
Lestu um leikinn: Þór 4 - 1 Fylkir
Þór og Fylkir áttust við í fyrsta leik kvöldsins í Lengjudeild karla og komust heimamenn yfir snemma leiks þegar Clement Bayiha setti boltann í netið á fjórtándu mínútu.
Clement skoraði eftir vandræðagang í vörn Fylkis en fyrri hálfleikurinn leikurinn var nokkuð jafn þar fyrir utan, þar sem bæði lið áttu nokkrar marktilraunir.
Bergvin Fannar Gunnarsson dómari þurfti að fara meiddur af velli eftir um hálftímaleik og tók Sveinn Arnarsson við dómgæslunni. Staðan var 1-0 fyrir Þór í leikhlé og jafnaði Tumi Fannar Gunnarsson fyrir gestina úr Árbæ snemma í síðari hálfleik.
Tumi Fannar skoraði eftir góðan undirbúning frá Ragnari Braga Sveinssyni og var staðan því 1-1 á 54. mínútu, en Þórsarar náðu forystunni aftur tæpri mínútu síðar.
Ibrahima Balde skoraði þá gott mark eftir fyrirgjöf frá Vilhelm Ottó Biering Ottóssyni til að taka forystuna á ný.
Leikurinn róaðist niður eftir þetta og var ekki meira skorað fyrr en á lokamínútunum þegar Sverrir Páll Ingason og Sigfús Fannar Gunnarsson gerðu út um viðureignina með sitthvoru markinu.
Lokatölur urðu 4-1 fyrir Þór eftir slakan varnarleik Fylkismanna.
Þór jafnar Þrótt R. á toppi deildarinnar með þessum sigri, þar sem bæði lið eiga 10 stig eftir 5 umferðir.
Fylkir situr eftir með 5 stig.
Athugasemdir