Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 17:15
Brynjar Ingi Erluson
Allegri snýr aftur til Milan - Gasperini fundar með Roma
Mynd: EPA
Von er á þjálfarabreytingum í ítalska boltanum á næstu dögum en Max Allegri er að snúa aftur til AC Milan og þá er Gian Piero Gasperini að taka við Roma.

Sergio Conceicao verður ekki áfram hjá Milan og hefur félagið þegar fundið arftaka hans.

Allegri, sem gerði Milan að deildarmeisturum árið 2011, er að taka aftur við liðinu.

Ítalinn gerði góða hluti með Milan-liðið frá 2010 til 2014 áður en hann var ráðinn til Juventus. Þar þjálfaði hann í fimm ár áður en hann var látinn fara en tók aftur við árið 2021.

Á síðasta ári var hann látinn fara í annað sinn frá Juventus eftir óviðunandi hegðun eftir úrslitaleik liðsins gegn Atalanta í ítalska bikarnum.

Fabrizio Romano segir hann nú aftur á leið til Milan og styttist í að aðilarnir nái saman.

Gasperini til Roma

Roma er líka að ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara en Gian Piero Gasperini mun taka við keflinu af Claudio Ranieri.

Ranieri sneri aftur til Roma nokkrum mánuðum eftir að hafa sest í helgan stein. Hann náðum ótrúlegum árangri á tíma sínum hjá Roma og kom liðinu í Evrópudeildina þrátt fyrir slaka byrjun á tímabilinu.

Gasperini mun koma inn í hans stað. Ítalinn hefur stýrt Atalanta við góðan orðstír síðustu níu ár og tekist gera það að einu besta liði Seríu A.

Samkvæmt Romano er Gasperini í þessum skrifuðu orðum á fundi með Roma til að ganga frá samkomulagi og ætti að styttast í tilkynningu frá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner