Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 09:41
Elvar Geir Magnússon
Collins ánægður með Heimi: Erum á réttri leið
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson.
Mynd: EPA
Nathan Collins, varnarmaður írska landsliðsins, telur að það séu bjartir tímar framundan hjá landsliði Írlands og að það sé á réttri leið undir stjórn Heimis Hallgrímssonar.

Írland er að fara að mæta Senegal og Lúxemborg í vináttulandsleikjum í júní til að búa sig undir undankeppni HM þar sem Írar eru með Portúgal, Ungverjalandi og Armeníu í riðli.

„Við erum með mikla hæfileika í hópnum okkar. Markmiðið er að komast á HM eða EM og mér finnst við færast nær. Nýr þjálfari hefur komið inn og sýnt að hans aðferðir virka," segir Collins en Heimir hefur gert hann að fyrirliða.

„Ég var fyrirliði í yngri landsliðum og fékk ungur að árum að vera með fyrirliðabandið hjá Stoke. Seamus Coleman hefur verið að glíma við meiðsli í síðustu gluggum og stjórinn valdi mig til að bera bandið. Það er sannur heiður."

Collins spilaði hverja einustu mínútu fyrir Brentford í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili og er eini útispilarinn í deildinni sem afrekaði það.
Athugasemdir
banner