Viktor Jónsson, framherji ÍA, hrósaði tveimur liðsfélögum sínum sérstaklega eftir leikinn gegn Breiðabliki í gær. Það voru þeir Ómar Björn Stefánsson og Jón Gísli Eyland Gíslason.
„Við gengum á lagið, náðum að keyra á þá í skyndisóknum, Ómar náttúrulega sturlaður í þessum leik, hljóp á bakvið þá og kom boltanum fyrir. Jón Gísli sömuleiðis, geggjaður í dag og bara allir í liðinu frábærir. Það var æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur," sagði Viktor.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 ÍA
Jón Gísli átti frábært tímabil með ÍA í fyrra og orðaður við atvinnumennsku erlendis. Í gær var hann valinn maður leiksins. Hann er hægri vængbakvörður og var með áætlunarferðir upp og niður kantinn í leiknum.
„Jón Gísli hneigðu þig. Var frábær í dag og var með áætlunarferðir upp og niður hægri vænginn í dag og þá sérstaklega í síðari hálfleik og mataði liðsfélagana sína með eitruðum boltum inn á teiginn," skrifaði Anton Freyr Jónsson um hann í skýrslu sinni. Viktor var spurður út í Jón Gísla.
„Jón Gísli er búinn að vera einn besti leikmaðurinn okkar í langan langan tíma, einn besti leikmaður sem ég hef spilað með og hentar mér alveg rosalega vel upp á mína styrkleika. Hann er ástæðan fyrir því að ég get spilað leikinn minn. Það voru fleiri sem leystu sitt gríðarlega vel, Erik (Tobias Sandberg) alltaf geggjaður og miðjan frábær í dag. Geðveik liðsframmistaða í dag og vonandi getum við byggt á þetta," sagði Viktor. Viðtalið við hann má nálgast í spilaranum neðst.
Athugasemdir