Manchester United vann Hong Kong 3-1 í vináttuleik í Asíuferð félagsins þar sem ungur danskur leikmaður, Chido Obi, skoraði sín fyrstu mörk fyrir félagið.
Þrátt fyrir að Juninho hafi komið Hong Kong yfir í fyrri hálfleik náði United að snúa leiknum sér í hag í seinni hálfleik.
Obi jafnaði metin með góðu marki á 50. mínútu og tryggði síðan forystu United með skallamarki eftir góða fyrirgjöf frá Mason Mount á 82. mínútu. Obi er 17 ára og kom í herbúðir United frá Arsenal á síðasta ári.
Ayden Heaven bætti við lokamarki úr skalla í uppbótartíma. Rúben Amorim, stjóri Manchester United, notaði leikinn til að gefa ungum leikmönnum tækifæri.
Jonny Evans spilaði sinn síðasta leik fyrir félagið og bæði Bruno Fernandes og Alejandro Garnacho voru í byrjunarliði, þrátt fyrir umræðu um framtíð þeirra hjá liðinu.
Athugasemdir