
Fanndís Friðriksdóttir er á bekknum hjá Íslandi í kvöld gegn Noregi í Þjóðadeildinni. Hún var kölluð inn í hópinn á dögunum en það eru fimm ár frá hennar síðasta leik.
Hin 33 ára gamla Fanndís hefur leikið vel með Val í sumar. Hún var um árabil fastamaður í landsliðinu en hefur síðustu ár glímt við meiðsli og sömuleiðis eignast tvö börn.
Hin 33 ára gamla Fanndís hefur leikið vel með Val í sumar. Hún var um árabil fastamaður í landsliðinu en hefur síðustu ár glímt við meiðsli og sömuleiðis eignast tvö börn.
Fanndís kom inn í hópinn eftir að Emilía Kiær Ásgeirsdóttir meiddist en rætt var um þetta val hjá landsliðsþjálfaranum á RÚV fyrir leikinn.
„Fanndís hefur haft þá eiginleika að geta verið í þessum hóp finnst mér. Við erum að fá inn mikinn og sterkan karakter. Fanndís er gædd þeim eiginleikum að hún gæti búið til partý ein í herberginu og líka rifist ein við sjálfa sig í herberginu. Hún er sigurvegari og getur skipt sköpum inn á vellinum," sagði Adda Baldursdóttir.
„Við tökum leikmann sem er að spila þessar fremstu stöður í Bestu deildinni, og þá var ég meira að horfa á Berglindi (Björgu Þorvaldsdóttur). Ég hélt að það yrði kallið því okkur hefur vantað mörk frá alvöru níu," sagði Albert Brynjar Ingason.
Berglind Björg hefur gert vel í að koma til baka eftir að hafa eignast barn en hún er markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar.
Athugasemdir