Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 14:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður Tindastóll með lið á næsta ári?
Kvenaboltinn
Kvennalið Tindastóls er í Bestu deildinni.
Kvennalið Tindastóls er í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Donni, þjálfari Tindastóls.
Donni, þjálfari Tindastóls.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Staðarmiðillinn Feykir.is fjallaði um það núna í vikunni að enginn hefði gefið kost á sér í formannsstól knattspyrnudeildar Tindastóls á aðalfundi félagsins.

Möguleiki er á því að það verði enginn meistaraflokksfótbolti á Sauðárkróki á næsta ári.

„Því hefur verið stungið að Feyki að ef knattspyrnudeildin fer formannslaus inn i veturinn gæti niðurstaðan orðið sú að aðalstjórn Tindastóls taki við stjórninni og hún sé ekki að fara að reka knattspyrnudeildina. Það gæti í versta falli þýtt að meistaraflokkar Tindastóls yrðu dregnir úr keppni næsta sumar," segir í frétt Feykis.

Þjálfarar og leikmenn kvennaliðs Tindastóls hafa gert sitt allra besta í sumar en það hefur verið margt ábótarvant í kringum liðið sem leikur í efstu deild kvenna. Íslenskur kjarni liðsins er mestallur samningslaus og þá var það gagnrýnt af öðrum þjálfara í efstu deild hversu gamla bolta liðið væri að æfa og hita upp með.

Halldór Jón Sigurðsson, Donni, ræddi við Vísi um stöðuna. Áhuginn virðist vera meiri á körfuboltanum á Sauðárkróki.

„Við sjáum okkur ekki sem körfuboltinn á móti fótboltanum, langt frá því og við viljum bara að við séum eitt félag sem við erum. Við erum geysilega stolt af því frábæra starfi sem hefur verið unnið þar alveg eins og við erum stolt af því starfi sem hefur verið unnið hjá okkur. Það ætti klárlega að vera hægt að gera betur, það er ekki spurning. En áhuginn er bara þarna megin og maður skilur það."

„Maður fær ekki fólk til að gera eitthvað sem það vill ekki gera, það er augljóst. Við erum með gríðarlega mikið af flottu og frambærilegu fólki á svæðinu sem er að spila fyrir liðin og ég hefði haldið að það ætti að vera meira aðdráttarafl fyrir fólk til þess að vilja vinna fyrir okkur því við erum að reyna gera þetta eins mikið og við getum á heimafólki," sagði Donni.
Athugasemdir
banner
banner