Jobe Bellingham, leikmaður Sunderland á Englandi, hafnaði þýska félaginu Eintracht Frankfurt í dag, en þetta kemur fram í Frankfurter Rundschau.
Bellingham ferðaðist með fjölskyldu sinni til Frankfurt til að skoða aðstæður á dögunum.
Aðeins nokkrum dögum síðar tilkynnti hann Frankfurt að verkefnið heillaði hann ekki og mun hann því fara annað.
Bellingham fór með Sunderland upp í úrvalsdeildina á dögunum og er nánast öruggt að hann sé á förum, en hann hefur einnig verið orðaður við Borussia Dortmund og Bayer Leverkusen.
Jude, bróðir Jobe, þróaði feril sinn hjá Dortmund og er ekki ólíklegt að hann vilji fara sömu leið.
Athugasemdir