Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 13:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skemmtilegt augnablik í Eyjum - Heimir óskaði Tryggva til hamingju
Tryggvi og Auðun Helgason með Íslandsmeistarabikarinn 2005.
Tryggvi og Auðun Helgason með Íslandsmeistarabikarinn 2005.
Mynd: Sport.is - Hilmar Þór
Magnaður leikmaður.
Magnaður leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Tryggvi Guðmundsson var í gær valinn besti leikmaður í sögu efstu deildar í skemmtilegri samantekt á Vísi. Tryggvi er markahæsti leikmaður í sögu deildarinnar og margfaldur Íslandsmeistari.

Hann er fréttamaður Fótbolta.net í Vestmannaeyjum og eftir að hafa textalýst leik ÍBV og FH í gær tók hann sinn gamla liðsfélaga og þjálfara, Heimi Guðjónsson, í viðtal. Tryggvi lék með Heimi tímabilið 2005, Heimir var aðstoðarþjálfari FH 2006 og tímabilin 2007-2009 var Heimir aðalþjálfari og Tryggvi í liðinu.

Á þessum árum varð FH fjórum sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  1 FH

Í viðtalinu óskaði Heimir Tryggva til hamingju með viðurkenninguna. Það gerði hann eftir að Tryggvi spurði hann út í dauðafærið sem Björn Daníel Sverrisson, leikmaður FH, hafði fengið í seinni hálfleik.

„Þetta snýst líka um að klára færin, en það er nú líka þannig í fótbolta Tryggvi.. ég ætla nú að óska þér til hamingju með að hafa verið valinn besti leikmaður efstu deildar á Vísi - þú ert vel af því kominn - af því ég bæði þjálfaði og spilaði með þér...," sagði Heimir sem klappaði Tryggva á öxlina og hélt svo áfram:

„Við spiluðum á sunnudaginn, erum að spila í dag í Eyjum og eigum svo Aftureldingu strax næsta sunnudag. Í seinni hálfleiknum í dag voru menn farnir að hugsa um leikinn gegn Aftureldingu. Þeir hugsuðu að þeir gætu sloppið með 70% vinnuframlag í seinni hálfleiknum í dag en þannig virkar ekki fótbolti og okkur var refsað að vera ekki klárir í seinni hálfleikinn," sagði Heimir.

Hamingujóskina má sjá í spilaranum hér að neðan, eftir rúma mínútu af viðtalinu.
Heimir Guðjóns ósáttur með vinnuframlagið
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir
banner