Vincenzo Italiano er búinn að skrifa undir nýjan samning við Bologna eftir að hafa hugleitt það síðustu tvær vikur. Nýr samningur gildir út næstu tvö keppnistímabil.
Italiano hefur verið að gera frábæra hluti með Bologna og fékk nýtt samningstilboð beint eftir úrslitaleik ítalska bikarsins um miðjan maí, þar sem Bologna sigraði gegn AC Milan og tryggði sér þar með sæti í Evrópudeildinni næsta haust.
Italiano er 47 ára gamall og stýrði Fiorentina í þrjú ár áður en hann tók við Bologna. Hjá Fiorentina tapaði Italiano þremur úrslitaleikjum, tveimur í Sambandsdeild Evrópu og einum í ítalska bikarnum, en honum tókst að vinna titil í sinni fyrstu tilraun hjá Bologna.
Þetta var jafnframt fyrsti stóri titill félagsins síðan Bologna vann ítalska bikarinn 1974, fyrir rúmlega 50 árum síðan. Bologna vann einnig sumarmótið Intertoto Cup árið 1998.
Þá má geta þess að Fiorentina hefur staðfest að Raffaele Palladino sér hættur sem þjálfari liðsins. Hann hafði misst vinsældir sínar meðal stuðningsmanna Fiorentina en félagið reyndi þó að fá hann til að vera áfram, án árangurs.
???????????????????????????????? ???????????????????????????????? rossoblù fino al ???????????????? ????????#WeAreOne
— Bologna FC 1909 (@Bolognafc1909) May 29, 2025
Athugasemdir