Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Jordan og Brynjar rústuðu KFK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árbær 6 - 1 KFK
1-0 Jordan Chase Tyler ('30 )
2-0 Jordan Chase Tyler ('34 )
3-0 Gylfi Örn Á Öfjörð ('38 , Sjálfsmark)
4-0 Brynjar Óli Axelsson ('76 )
4-1 Hubert Rafal Kotus ('82 , Mark úr víti)
5-1 Brynjar Óli Axelsson ('84 )
6-1 Brynjar Óli Axelsson ('90 )

Árbær tók á móti KFK í eina leik gærdagsins í 3. deild karla og rúlluðu heimamenn yfir gestina.

Jordan Chase Tyler skoraði fyrstu tvö mörk leiksins áður en Gylfi Örn Öfjörð setti boltann í eigið net og var staðan því 3-0 fyrir Árbæinga þegar flautað var til leikhlés.

Brynjar Óli Axelsson hjálpaði heimamönnum með þrennu í síðari hálfleik, en Hubert Rafal Kotus náði að minnka muninn með marki úr vítaspyrnu á milli marka Brynjars.

Lokatölur urðu því 6-1 fyrir Árbæ eftir tvö mörk frá Jordan og þrennu frá Brynjari.

Árbær er í þriðja sæti með sjö stig eftir þennan stórsigur á meðan KFK situr eftir á botni deildarinnar með þrjú stig. Bæði lið eru búin með fimm umferðir og eiga öll liðin í kring leik til góða.

Árbær Daði Fannar Reinhardsson (m), Agnar Guðjónsson (80'), Kormákur Tumi Einarsson, Zachary Chase O´Hare, Atli Dagur Ásmundsson (63'), Kristján Daði Runólfsson (80'), Arnar Páll Matthíasson (80'), Ragnar Páll Sigurðsson, Jordan Chase Tyler, Marko Panic (54'), Eyþór Ólafsson
Varamenn Örnólfur Sveinsson, Daníel Gylfason, Gunnar Sigurjón Árnason (80'), Brynjar Óli Axelsson (54'), Gunnþór Leó Gíslason (63'), Andrija Aron Stojadinovic (80'), Stefan Jankovic (80')

KFK Björn Mikael Karelsson (m), Gylfi Örn Á Öfjörð, Hubert Rafal Kotus, Kristinn Snær Guðjónsson, Brynjar Skjóldal Þorsteinsson (46'), Keston George, Kaj Leo Í Bartalstovu, Arnar Eide Garðarsson (46'), Pétur Máni Þorkelsson (78'), Dmytro Bondarenko (46'), Patrekur Hafliði Búason (63')
Varamenn Sigurður Orri Magnússon (63), Ingvar Pálmi Vilhjálmsson, Olsi Tabaku (78), Brynjar Hlöðvers (46), Leonidas Baskas (46), Jhon Orlando Rodriguez Vergara (46), Sigurbjörn Elí Gautason
3. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Hvíti riddarinn 4 4 0 0 13 - 6 +7 12
2.    Augnablik 4 3 1 0 12 - 5 +7 10
3.    Árbær 5 2 1 2 14 - 10 +4 7
4.    Magni 4 2 1 1 5 - 4 +1 7
5.    Reynir S. 5 2 1 2 13 - 15 -2 7
6.    Sindri 4 2 0 2 8 - 7 +1 6
7.    Tindastóll 4 2 0 2 7 - 7 0 6
8.    KF 4 1 2 1 5 - 5 0 5
9.    KV 4 1 1 2 9 - 9 0 4
10.    Ýmir 5 1 1 3 7 - 10 -3 4
11.    ÍH 4 1 0 3 10 - 17 -7 3
12.    KFK 5 1 0 4 5 - 13 -8 3
Athugasemdir