Bergsveinn Ólafsson átti ekki sinn besta leik í vörn Fjölnis frekar en aðrir leikmenn liðsins en liðið var fallið um deild fyrir leikinn og því stoltið eina sem var undir. Eftir 7-0 tap gegn Fylki er erfitt að sjá að það sé mikið stolt eftir hjá leikmönnum Fjölnis.
Lestu um leikinn: Fylkir 7 - 0 Fjölnir
"Þetta var gjörsamlega hræðilegt og að menn séu ekki með meira stolt en þetta er bara lélegt. Þetta var ekki Fjölni til sóma og ekki okkur til sóma"
Bergsveinn kom til Fjölnis frá FH fyrir tímabilið en hann var ekki í myndinni hjá Ólafi Kristjánssyni, þjálfara FH. Hann vildi ekki mikið tjá sig um framtíð sína en hann er opinn fyrir því að hjálpa Fjölnisliðinu að komast aftur upp í efstu deild.
"Ég er ennþá að melta þetta allt saman. Það er mesta sjokkið að hafa fallið og ég er bara ekki búinn að hugsa út í framtíðina"
Bergsveinn væri til í að breyta mjög miklu ef hann gæti farið til baka og segir hann að allur klúbburinn í heild sinni hafi bara skitið og það væri margt sem gæti farið betur
"Það er ógeðslega erfitt að gíra sig upp fyrir leik sem skiptir engu máli en við ætluðum okkur að spila þennan leik almennilega en við gerðum það svo sannarlega ekki í dag"
"Við sjáum bara til hvað skeður á næstu dögum. Ég er samningsbundinn og eins og staðan er í dag þá verð ég áfram en við sjáum bara til".
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan
Athugasemdir























