Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fim 30. september 2021 12:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ferdinand fékk SMS frá Ronaldo eftir leik
Eftir leikinn í gær
Eftir leikinn í gær
Mynd: EPA
Rio Ferdinand átti sinn þátt í því að Cristiano Ronaldo sneri aftur til Manchester United eftir tólf ára fjarveru.

Ferdinand var við störf á BT Sport í gær og sagði frá því að hann hefði fengið SMS skilaboð frá Ronaldo eftir leik United gegn Villareal. Ronaldo skoraði sigurmar United í uppbótartíma.

„Ég spilaði ekki vel en ég vissi að ég myndi skora," segir Ferdinand að Ronaldo hafi skrifað í skilaboðunum.

„Hann vill vera maðurinn sem fær færið. Markafjöldinn á ferlinum segir alla söguna. Hann er mættur á stóru augnablikunum," sagði Ferdinand í útsendingunni.
Athugasemdir
banner
banner