Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bjóða Leroy Sané bættan samning
Mynd: EPA
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Þýski kantmaðurinn Leroy Sané verður líklegast áfram hjá FC Bayern þrátt fyrir áhuga úrvalsdeildarliða á honum.

Sané er 29 ára gamall kantmaður sem rennur út á samningi í sumar. Hann hafnaði nýju samningstilboði frá Bayern fyrr í maí og réði Pini Zahavi sem nýjan umboðsmann til að sjá um samningsmálin fyrir sig.

Bayern bauð Sané samning upp á rúmar 10 milljónir evra í árslaun sem hann hafnaði. Núna greina fjölmiðlar í Þýskalandi frá nýju endurbættu tilboði Bæjara eftir kvöldverð Zahavi ásamt stjórnendum félagsins.

Max Eberl, yfirmaður fótboltamála hjá Bayern, segir að félagið vilji halda Sané innan sinna raða og lýsti kvöldverðinum með Zahavi sem jákvæðum.

Arsenal og Tottenham eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Sané, en ólíklegt þykir að þau muni bjóða honum betri samning heldur en Þýskalandsmeistararnir.

Þýskir fjölmiðlar segja að nýtt samningstilboð Bayern hljóði upp á 13 milljónir evra í árslaun.

   30.05.2025 16:00
Stjórnendur tvístígandi yfir Leroy Sané

Athugasemdir
banner