Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham og Bayern spyrjast fyrir um Nkunku
Mynd: Leiknir
Tottenham Hotspur og FC Bayern eru meðal félagsliða sem eru byrjuð að spyrjast fyrir um Christopher Nkunku, sóknarleikmann Chelsea.

Nkunku er ósáttur með lítinn spiltíma hjá Chelsea og er félagið tilbúið til að selja hann til að fjármagna kaup á nýjum leikmönnum.

Nkunku er 27 ára gamall og kom að 19 mörkum í 42 leikjum með Chelsea. Hann kom oft inn af bekknum og vill skipta til félags þar sem hann getur fengið meiri spiltíma.

Mörg félög hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm en Nkunku er með fjögur ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Talið er að enska stórveldið vilji um 60 til 70 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Arsenal og Manchester City eru einnig sögð vera meðal áhugasamra félaga.
Athugasemdir