Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Búnir að finna arftaka fyrir Reijnders
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það verður nóg að gera hjá AC Milan í sumar þar sem mikið af leikmönnum virðast vera á leið burt frá félaginu.

Miðjumaðurinn öflugi Tijjani Reijnders er líklega á leið til Manchester City ef félögin komast að samkomulagi um kaupverð.

Milan er reiðubúið til að selja hann fyrir rétt rúmar 60 milljónir punda en fyrsta tilboð frá Man City hljóðar upp á 50 milljónir.

Ítalska stórveldið er þegar búið að finna nýjan miðjumann sem getur styrkt miðjuna fyrir komandi átök í Serie A á næstu leiktíð. Sá heitir Samuele Ricci og er 23 ára gamall.

Ricci á 8 A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu og var orðaður við Man City í janúarglugganum.

Ricci er lykilmaður á miðjunni hjá Torino og vill ítalska félagið fá 35 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Reijnders og Ricci eru báðir gæðamiklir miðjumenn en Reijnders leikur í sóknarsinnuðu hlutverki hjá Milan. Ólíklegt er að Ricci verði notaður í sama hlutverki þar sem hann er best nýttur aftar á miðjunni.

Reijnders var iðinn við að skora og leggja upp í Serie A deildinni og lítur Man City á hann sem öfluga viðbót við miðjuna sína eftir brottför Kevin De Bruyne. Hann er hugsaður sem 'átta', eða til að leika í svipuðu hlutverki og Mateo Kovacic.

City er einnig að skoða Rayan Cherki, Morgan Gibbs-White og Dani Olmo til að hjálpa við að fylla í skarðið sem De Bruyne skilur eftir sig. Þeir eru hugsaðir sem 'tíur', til að leika í svipuðu hlutverki og De Bruyne.

Stórveldið er auk þess í leit að markverði, miðverði og bakverði í sumarglugganum.
Athugasemdir