Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Selja Udinese til að einbeita sér að Watford
Mynd: EPA
Mynd: WatfordFC
Gino Pozzo, eigandi Watford og Udinese, er að selja Udinese þessa dagana til að geta einbeitt sér meira að rekstrinum hjá Watford.

Pozzo fjölskyldan hefur átt Udinese í 39 ár en er nú ákveðin í því að selja félagið fyrir tæplega 200 milljónir evra til bandarískra fjárfesta.

Pozzo fjölskyldan átti einnig spænska félagið Granada í nokkur ár en seldi það til kínversks viðskiptamanns fyrir níu árum síðan.

Nú hefur fjölskyldan ákveðið að einbeita sér að Watford þar sem tekjumöguleikar enskra fótboltafélaga eru margfalt hærri heldur en möguleikar ítalskra eða spænskra félaga.

Markmið Pozzo fjölskyldunnar er að koma Watford aftur upp í ensku úrvalsdeildina og gera það aftur að stöðugu úrvalsdeildarfélagi.

Watford hefur verið fast í Championship deildinni síðastliðin þrjú ár og endaði í 14. sæti á nýliðnu tímabili.

Fyrsta skrefið hjá Ítölunum fyrir nýtt tímabil er að ráða Valon Behrami, fyrrum leikmann Lazio, Napoli og Watford meðal annars, sem aðstoðarmann fyrir Gian Luca Nani, yfirmann íþróttamála hjá Watford.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 46 29 13 4 95 30 +65 100
2 Burnley 46 28 16 2 69 16 +53 100
3 Sheffield Utd 46 28 8 10 63 36 +27 90
4 Sunderland 46 21 13 12 58 44 +14 76
5 Coventry 46 20 9 17 64 58 +6 69
6 Bristol City 46 17 17 12 59 55 +4 68
7 Blackburn 46 19 9 18 53 48 +5 66
8 Millwall 46 18 12 16 47 49 -2 66
9 West Brom 46 15 19 12 57 47 +10 64
10 Middlesbrough 46 18 10 18 64 56 +8 64
11 Swansea 46 17 10 19 51 56 -5 61
12 Sheff Wed 46 15 13 18 60 69 -9 58
13 Norwich 46 14 15 17 71 68 +3 57
14 Watford 46 16 9 21 53 61 -8 57
15 QPR 46 14 14 18 53 63 -10 56
16 Portsmouth 46 14 12 20 58 71 -13 54
17 Oxford United 46 13 14 19 49 65 -16 53
18 Stoke City 46 12 15 19 45 62 -17 51
19 Derby County 46 13 11 22 48 56 -8 50
20 Preston NE 46 10 20 16 48 59 -11 50
21 Hull City 46 12 13 21 44 54 -10 49
22 Luton 46 13 10 23 45 69 -24 49
23 Plymouth 46 11 13 22 51 88 -37 46
24 Cardiff City 46 9 17 20 48 73 -25 44
Athugasemdir
banner