Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fernando Torres fær nýjan samning
Mynd: EPA
Fernando Torres, fyrrum sóknarmaður Liverpool og Chelsea, er búinn að framlengja samning sinn sem aðalþjálfari varaliðs Atlético Madrid.

Samningurinn gildir út næstu tvö keppnistímabilin en Torres hefur verið að gera flotta hluti sem þjálfari. Hann stóð sig frábærlega með U19 lið Atlético og var meðal annars orðaður við aðalþjálfarastarfið hjá Schalke í fyrra.

Mögulegt er að Torres yfirgefi starf sitt sem þjálfari varaliðsins ef eitthvað félag er reiðubúið til að kaupa upp samninginn hans við Atlético.

Torres er 41 árs gamall og ólst upp hjá Atlético frá ellefu ára aldri.


Athugasemdir
banner
banner