Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 11:30
Mate Dalmay
1 á 1 mót Fótbolti.net og Adams Páls 17.júní - Opið fyrir skráningar
Hálf milljón eru í aðal verðlaun - Takmarkað pláss er í boði og um að gera skrá sig sem fyrst!
Hálf milljón eru í aðal verðlaun - Takmarkað pláss er í boði og um að gera skrá sig sem fyrst!
Mynd: Adam Ægir

Fótbolti.net og Adam Ægir Pálsson, í samstarfi við Nike, NOVA, Hamborgara Búlluna og Coca-Cola, ætla að halda 1 á 1 mót laugardaginn 17. júní. Er þetta fyrsta slíka mótið á Íslandi.

Mótið fer fram klukkan 15:00 á Þróttaravelli í Laugardalnum en sigurvegarinn fær 500.000 kr. í verðlaunafé.


Fyrirkomulag:

- Einn aldursflokkur, allir á móti öllum.

- Verðlaun: 500.000 kr. fyrir 1. sæti og 100.000 kr fyrir 2. sæti.

- Dómarar verða knattspyrnumenn og starfsmenn Fótbolti.net.

- Í markinu munu standa atvinnumenn.

- Keppendur geta keypt eitt eða tvö líf. Eitt líf kostar 1.500 kr ef keypt á netinu en 2.000 kr á staðnum. Tvö líf kosta 2.500 kr á netinu en 3.500 ef keypt á staðnum. Leikmenn fá armbönd (1 eða 2) sem eru líf þeirra og missa armband þegar þeir tapa viðureign.

Reglur:

Spilað best of 3.

- Skipst á (þannig að allir fá að fara í sókn)

- Kastað upp á hvor byjar

- Byrjum rétt fyrir utan vítateig

- Dómari getur dæmt víti / dómari getur gefið rautt sem jafngildir því að tapa viðureigninni. - Leikmenn fá armband í upphafi og missa það við tap. Hægt að kaupa tvö armbönd.

Hægt er að kaupa miða og skrá sig á Tix.is með því að smella hér.


Athugasemdir
banner