Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gerir tveggja ára samning við Ajax
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Johnny Heitinga er búinn að samþykkja tveggja ára samning hjá Ajax og mun því taka við starfi aðalþjálfara eftir að Francesco Farioli sagði upp.

Farioli mistókst að sigra hollensku deildina með ævintýralegum hætti. Ajax var með níu stiga forystu þegar fimm umferðir voru eftir, en liðið tapaði afar óvænt gegn FC Utrecht og NEC Nijmegen og gerði jafntefli við Sparta Rotterdam og Groningen til að missa toppsætið.

Heitinga er 41 árs gamall og hóf atvinnumannaferilinn sinn hjá Ajax. Hann lék fyrir hollenska landsliðið og kom meðal annars við hjá Atlético Madrid, Everton og Fulham á ferlinum.

Hann endaði ferilinn hjá Ajax og tók svo við U19 liði félagsins. Eftir nokkur ár við stjórnvölinn tók hann við varaliðinu og var svo ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari meistaraflokks tímabilið 2023-24. Hann tók við af Alfred Schreuder og gerði flotta hluti með aðalliðið en fékk ekki samning.

Hann var í kjölfarið ráðinn í þjálfarateymi David Moyes hjá West Ham og svo í teymið hjá Arne Slot þegar hann tók við Liverpool í fyrrasumar.

Heitinga er því að gera sinn fyrsta samning sem aðalþjálfari fótboltafélags eftir að hafa stýrt Ajax sem bráðabirgðaþjálfari fyrir tveimur árum.
Athugasemdir