Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 23:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jökull: Finnst umræðan um possession ekki á merkilegu plani
Jökull í Garðabænum í gær.
Jökull í Garðabænum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Starnan þurfti einungis örfáar snertingar á boltann til að skora fyrsta og fjórða markið sitt. Örvar Eggerts skoraði fjórða markið.
Starnan þurfti einungis örfáar snertingar á boltann til að skora fyrsta og fjórða markið sitt. Örvar Eggerts skoraði fjórða markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir leik Stjörnunnar og KR í gær, sem Stjarnan vann 4-2, sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, að hann hefði að einhverju leyti langað að halda betur í boltann. KR var 74% með boltann í leiknum og Stjarnan 26%.

Enska orðið possession (hversu mikið lið eru með boltann) verður talsvert notað í þessari stuttu grein.

„Mér fannst við fá hættulegri færi. Þeir eru góðir í að halda boltanum, góðir að skapa færi og komast í frábærar stöður. Að einhverju leyti langaði manni að halda meira í boltann, en þegar þeir eru svona opnir til baka er það að einhverju leyti óborguð yfirvinna því við erum töluvert hraðari en þeir og það er svo mikið pláss og því erfitt að fara ekki beint aftur fyrir þá. Okkar sóknir voru stuttar, en ég held að við höfum fengið betri færi. Það er ekki partur af upplegginu að vera lítið með boltann. Það er erfitt að setja hann ekki í gegn þegar þú ert með svona fljóta menn gegn svona línu, ég get ekki kvartað yfir því," sagði Jökull eftir leikinn í gær.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  2 KR

Fótbolti.net ræddi við Jökul aftur í dag. Hefur þú eitthvað spáð meira í hvort þið hefðuð viljað halda boltanum meira í leiknum?

„Nei. Mér finnst umræðan um possession ekki á merkilegu plani. Mér finnst possession vera mjög vondur vísir (e. indicator) á úrslit. Ef ég horfi bara á okkur sjálfa, þá finnst mér hátt possession þegar þú ert lentur undir ekki merkileg breyta (e. parameter) og ekki eitthvað sem mér finnst merkilegt fyrir okkur að horfa í. Hins vegar finnst mér ákveðið merki um hugrekki og alls konar hluti ef þú getur haldið háu possessioni þegar þú ert yfir, og sérstaklega ef forystan er lítil," segi Jökull.

„Við lögðum upp með að reyna komast hratt aftur fyrir þá ef við gætum. Það var ennþá meira 'on' en ég átti von á. Miðað við öll færin sem við sköpuðum upp úr því, þá veit ég ekki hvort við hefðum verið að gera okkur eitthvað betri í þessum leik með því að ætla halda boltanum bara til að halda honum. Við viljum særa, viljum skora mörk og erum í þessu til þess. Við gerðum það og ég er mjög ánægður með það," segir Jökull.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir
banner
banner