Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pep Lijnders og Kolo Touré á leið til Man City
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því að Pepijn Lijnders sé að ganga í nýtt starf sem aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá Manchester City.

Pep Lijnders var álitinn vera hægri hönd Jürgen Klopp hjá Liverpool og hætti hann hjá félaginu á sama tíma og Klopp.

Lijnders var ráðinn sem aðalþjálfari RB Salzburg á meðan Klopp var ráðinn sem yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni.

Lijnders entist ekki lengi í starfinu hjá Salzburg, eða aðeins í um sex mánuði, og er núna á leið til Manchester.

Lijnders mun starfa undir stjórn Guardiola þar og er Kolo Touré, fyrrum varnarmaður Arsenal og Man City, einnig á leið til félagsins.

Touré hefur áður starfað sem partur af þjálfarateyminu hjá Celtic og Leicester. Þá tók hann við stjórastarfinu hjá Wigan Athletic í nóvember 2022 en entist aðeins í tvo mánuði.

Touré og Lijnders eiga að hjálpa til við að fylla í skörðin sem Juanma Lillo, Inigo Dominguez og Carlos Vicens skilja eftir sig í þjálfarateyminu.
Athugasemdir
banner
banner