Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
PSG bætist við í kappið um heitasta táning Argentínu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Franska stórveldið Paris Saint-Germain hefur bæst við kapphlaupið um argentínska undrabarnið Franco Mastantuono.

Mastantuono er 17 ára gamall sóknartengiliður sem hefur vakið áhuga allra stærstu liða Evrópu á síðustu mánuðum.

Manchester United og Chelsea eru talin leiða kapphlaupið um hann eftir að Real Madrid hætti við að kaupa hann í vetur, en núna hefur PSG bæst við hópinn.

Mastantuono leikur með River Plate í Argentínu og tekur þátt í HM félagsliða í sumar. Hann verður 18 ára í ágúst og getur þá skipt yfir til Evrópu.

Mastantuono er mikilvægur hlekkur í liði River Plate þrátt fyrir ungan aldur, auk þess að vera lykilmaður í U20 landsliði Argentínu.

Hann er með riftunarákvæði sem hljóðar upp á 38 milljónir punda og eru Chelsea, Man Utd og PSG öll tilbúin til að greiða þá upphæð fyrir táninginn.

River Plate hefur þó engan áhuga á að selja hann í ár og sagði Stefano Di Carlo, aðalritari félagsins, að Mastantuono verður hjá félaginu út argentínska keppnistímabilið sem lýkur í desember.

Evrópsk félagslið geta því keypt táninginn í janúar, en River Plate hefur á undanförnum árum selt nokkra leikmenn til evrópskra stórliða. Til dæmis keypti Manchester City bæði Julián Alvarez og Claudio Echeverri frá River Plate, en Alvarez var svo seldur áfram til Atlético Madrid fyrir 82 milljónir punda.

Enzo Fernández er annar leikmaður sem kom upp úr akademíunni hjá River Plate, ásamt Alvarez og fjórum öðrum leikmönnum sem urðu heimsmeistarar með argentínska landsliðinu 2022.

River Plate hefur selt 51 leikmann til Evrópu á síðustu 20 árum. Mastantuono gæti orðið númer 52.
Athugasemdir