Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hleypa Rui Patrício á HM félagsliða
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Portúgalski markvörðurinn Rui Patrício mun taka þátt á HM félagsliða. Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Patrício rennur út á samningi hjá Atalanta í sumar og hefur ítalska félagið gefið honum leyfi til að yfirgefa svæðið fyrr til að ganga til liðs við Al-Ain.

Patrício er 37 ára gamall og mun verja mark Al-Ain á HM í sumar. Hann gerir þó aðeins skammtímasamning við félagið sem gildir út mótið.

Patrício spilaði síðast landsleik fyrir Portúgal í fyrra en hann hafði verið markvörður Sporting CP, Wolves og Roma áður en hann gekk til liðs við Atalanta á eins árs samningi í fyrra.

Patrício er með 108 landsleiki að baki fyrir Portúgal og mun mæta Juventus, Manchester City og Wydad Casablanca í riðlakeppni HM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner