Palli var mjög svekktur með að tapa enn eina ferðina 4-1 á útivelli en Magnamenn lutu lægra haldi gegn Fram í Safamýrinni fyrr í kvöld.
Þetta var í fimmta skipti sem Magni tapar 4-1 af sjö útileikjum.
Þetta var í fimmta skipti sem Magni tapar 4-1 af sjö útileikjum.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 1 Magni
„Ég er svekktur að tapa jú, öllum leikjum.'' Voru fyrstu orð Palla eftir leik.
Frammarar hefðu getað skorað fleiri, hvað var að klikka hjá Magnamönnum?
„Það var 0-0 í hálfleik, var það ekki? Já við töpum 4-1 þá veistu alveg hvað klikkar, menn fara útúr stöðum og þeir skora fjögur mörk. Þeir eru klárlega betra lið en Magni Grenivík, kannski kemur það þér á óvart ég veit það ekki.''
Magni hefur ekki enn fengið stig á gervigrasi, er það áhyggjurefni?
„Þú getur líka svarað þeirri spurningu.''
Er Palli bjartsýnn fyrir næstu leikjum sem eru allir gegn liðunum í kringum Magna?
„Ég hef sagt það áður og segi það enn svo mega menn bara halda hvort það sé eitthvað til í því, en já ég er bjartsýnn.''
Nánar er rætt við Palla í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir hann meðal annars betur um leikinn, styrkinguna sem Magni fékk, vandræði Magna á útivelli og sérstaklega á gervigrasi og hvort hann sé bjartsýnn á framhaldið.
Athugasemdir






















