Doninger í leik með ÍA gegn KA um síðustu helgi. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Skagamenn í 5-0 sigri.
Skagamenn sömdu á dögunum við enska miðjumanninn Mark Doninger. Þessi 21. árs gamli leikmaður er uppalinn hjá Newcastle en fyrir einungis tveimur árum sat hann á bekknum í nokkrum leikjum hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni.
Sama tímabil raðaði hann inn mörkum fyrir varalið Newcastle en þrátt fyrir það fór hann frá félaginu sumarið 2009.
,,2009 var slæmt ár fyrir félagið, við féllum og vorum með fjóra mismunandi knattspyrnustjóra. Þetta voru erfiðir tímar og það hafði áhrif á leikmenn," sagði Doninger í viðtali við Fótbolta.net.
,,Margir leikmenn fóru og samningar runnu út. Samningurinn minn rann út og það var ákveðið að ég myndi fara um sumarið."
Lífið öðruvísi á Akranesi:
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Doninger síðan hann yfirgaf Newcastle en hann lék á Írlandi í fyrra áður en hann gekk í raðir ÍA á dögunum.
,,Þetta kom til í gegnum umboðsmann minn Nick Mccreery, hann hafði samband við mig og útskýrði stöðuna. Ég samþykkti síðan að koma til Íslands og fara á reynslu hjá ÍA," sagði Doninger sem kann vel við sig á Akranesi.
,,Lífið á Íslandi er....hvað á ég að segja, öðruvísi! Ég er vanur því að lifa í stórborgum þar sem er margt í gangi svo Akranes er svolítið rólegur staður. Ég hef samt notið þess að búa hér hingað til og fólkið er líka frábært."
Skagamenn hafa leikið vel á æfingamótum á þessu ári og einungis tapað einum leik. Doninger er bjartsýnn fyrir sumarið.
,,Ég hef verið mjög hrifinn af ÍA og fagmennskunni hjá félaginu. Við höfum mjög sterkt lið og ég hlakka til tímabilsins sem ætti að ganga vel."
Enski framherjinn Gary Martin skoraði tíu mörk í níu leikjum með ÍA í fyrra og hefur haldið áfram að raða inn mörkunum í vetur. Gary er frá Middlesbrough, nágrannabæ Newcastle, og Doninger segir það hafa auðveldað ákvörðunina að ganga í raðir ÍA að vita af honum hjá félaginu.
,,Auðvitað hjálpaði sú staðreynd að Gary var að spila hérna. Að hafa annan enskan strák í liðinu hefur hjálpað mér að aðlagast betur og við náum vel saman."
Fékk treyjur hjá frægum leikmönnum:
Munurinn á ensku úrvalsdeildinni og íslensku fyrstu deildinni er afar mikill. Doninger segir það hafa verið frábæra reynslu að vera á bekknum hjá Newcastle í nokkrum leikjum tímabilið 2008/2009.
,,Að vera á bekknum í ensku úrvalsdeildinni var frábær tilfinning. Að vera fyrir framan 50 þúsund manns á ótrúlegum leikvöngum er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma."
,,Að standa við hliðina á mönnum eins og Rooney, Ferdinand, Giggs, De Jong, Santa Cruz og Crouch var ótrúlegt og ég náði að fá treyjur frá nokkrum leikmönnum. Að leika minn fyrsta aðalliðsleik gegn Hull var líka sérstakt augnablik."
Doninger fékk einnig að kynnast því að æfa með mönnum eins og Shay Given, Michael Owen, Joey Barton og Kevin Nolan hjá Newcastle.
,,Að æfa með aðalliðinu á hverjum degi var mjög erfitt. Gæði voru alltaf mjög mikil og ef þú slakaðir á þá vissir þú af því, þú gast ekki falið þig. Menn eins og Joey Barton og Kevin Nolan voru mjög góðir við mig þar sem að þeir spila mína stöðu og þeir voru alltaf að reyna að hjálpa mér að bæta mig sem leikmaður. Að vera í sama liði og Michael Owen var líka gott því í hvert skipti sem hann fékk færi þá skoraði hann."
Jonas er topp náungi:
Doninger heldur ennþá sambandi við þá leikmenn sem hann var með hjá Newcastle en hann er til að mynda góður vinur Jonas Gutierrez.
,,Ég á marga mjög góða vini hjá Newcastle sem ég er ennþá í sambandi við í dag. Menn eins og Callum Morris, Kazenga Lua Lua, Alex Patterson og Frank Danquah til að mynda. Ég náði mjög vel saman við Jonás Gutiérrez og Oba Martins. Ég á eina af treyjunum sem Jonas spilaði í á HM í sumar og hún er árituð af öllum í hópnum svo ég skulda honum ennþá fyrir það. Hann er topp náungi," sagði Doninger að lokum.



