Heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada hefst um næstu helgi og margir spenntir, en budda margra stuðningsmanna sem ferðast á mótið mun finna verulega fyrir því.
Mikið hefur verið rætt og ritað um miðaverð á leiki á HM, en BBC sagði frá því á dögunum að enn væru um 500 miðar lausir á opnunarleik Mexíkó og Suður-Afríku.
Miðarnir sem eftir eru kosta 283 þúsund krónur. Samkvæmt upplýsingum BBC eru 74 þúsund miðar enn lausir á 86 af 104 leikjum mótsins.
Miðaverðið er þó ekki það eina sem þykir hátt. Enska landsliðið mætti Nýja-Sjálandi á Raymond James-leikvanginum í Tampa í Flórída í gær og vakti einn stuðningsmaður athygli á drykkjarverði á vellinum.
Þar má sjá að ein vatnsflaska kostar 7,50 dollara, eða um þúsund krónur, áður en skattur bætist við. Stór bjór kostar á bilinu 16,75 til 18 dollara, sem jafngildir um 2.300 til 2.500 íslenskum krónum miðað við gengi dagsins í dag.
Hér fyrir neðan má sjá drykkjarseðilinn, en það verður fróðlegt að sjá hvernig verðið verður á öðrum leikvöngum mótsins. Ljóst er að ferðin verður ansi kostnaðarsöm fyrir þá sem ætla sér að fylgja liðum sínum á HM.
England fans have just had their first taste of World Cup 2026 prices… ????
— The Away Fans (@theawayfans) June 6, 2026
???? $18 beer
???? $7.50 water
Good luck everyone. ????
????: @SimonPeach pic.twitter.com/nVt5ZrWCJ7
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



