Sævar Atli Magnússon, leikmaður Brann, stefnir á að snúa til baka í næsta mánuði eftir að hafa glímt við erfið meiðsli.
Sævar meiddist í leik með landsliðinu gegn Frakklandi í október. Hann reif þá liðþófa í hné og varð strax ljóst að hann yrði frá í einhverja mánuði.
Eftir að hafa gengist undir aðgerð lenti hann í miklum hrakförum. Hann fékk sýkingu í hnéð í aðgerðinni og þurfti að fara í þrjár aðgerðir til viðbótar.
Fótbolti.net ræddi við Sævar á dögunum og spurði hann út í endurkomuferlið.

„Ég er aðeins byrjaður að æfa einn með styrktarþjálfara. Planið var að byrja að æfa með liðinu í lok júní og að vera í hóp í fyrsta leik eftir hlé (12. júlí). Það gengur vel eins og er, en ég er hættur að fagna of snemma og plana eitthvað. Ég tek þetta frá degi til dags. Vonandi verð ég í hóp í fyrsta leik,“ segir Sævar.
Um er að ræða fyrstu alvarlegu meiðsli Sævars á ferlinum: „Núna er maður aðeins að verða bjartsýnni. Ég bjóst ekki við að vera svona lengi frá. Fyrsta skiptið sem ég lendi í einhverju svona. Nú veit maður hvernig mönnum líður þegar þeir slíta krossband, hásin og allt það, þetta er alveg ömurlegt.
Það er talað um að þú komir sterkari til baka, jú kannski, en þú kemur ekkert endilega til baka sem betri leikmaður. En þú getur höndlað meira og betri karakter, það er það sem ég held að gerist hjá mér,“ segir Sævar að lokum en viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan.