Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 08. júní 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mæta á HM í túrkísblárri skólarútu
Mynd: EPA
Landslið Curaçao þreytir frumraun sína á stærsta sviðinu eftir viku. Liðið hefur svo sannarlega boðað komu sína og gerir það með öðrum hætti en önnur lið.

Curacao tryggði sig inn á HM með því að vinna riðil sinn í undankeppninni.

Stærstu þjóðirnar eru með þægindin í forgangi og eru með rándýrar liðsrútur sem svala helstu þörfum hjá rándýrum leikmannahópum en Curacao er ekki alveg í sama flokki.

Það er ákveðin nostalgía í gangi hjá Curacao sem mætir á heimsmeistaramótið í gamalli skólarútu.

Búið er að mála hana í túrkísbláum lit. Það sem fangar síðan stemninguna er að það eru engar rúður á hliðum bílsins, leikmenn með hendur hangandi úti og seyðandi tónlist spiluð.

Áttunda og níunda áratugar stemning í þessu hjá Curacao sem mun koma á óvart á heimsmeistaramótinu. Dick Advocaat er þjálfari liðsins og eru margir Hollendingar í hópnum, enda var Curacao hollensk nýlenda en er í dag sjálfsætt land innan Konungsríkisins Hollands.

Myndband af þessari skemmtilegu liðsrútu Curacao má sjá hér fyrir neðan.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner