Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 08. júní 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Liðsfélagi Daníels Inga á óskalista Real Madrid - Þurfa að borga metfé
Caleb í leik með landsliði Gana
Caleb í leik með landsliði Gana
Mynd: EPA
Spænska stórveldið Real Madrid hefur áhuga á því að fá Ganverjann Caleb Yirenkyi frá danska félaginu Nordsjælland. Þetta kemur fram í Tipsbladet.

Yirenkyi er tvítugur miðjumaður sem hefur heillað með Nordsjælland síðan hann kom frá Right to Dream-akademíunni í Gana fyrir tveimur árum.

Samkvæmt heimildum Tipsbladet er Real Madrid áhugasamt um leikmanninn og hefur óskað eftir upplýsingum um hann. Spænska stórveldið er einnig sagt hafa rætt við Michael Essien, aðstoðarþjálfara Nordsjælland, sem lék áður með Madrídingum.

Yirenkyi er þessa stundina með landsliði Gana sem undirbýr sig fyrir heimsmeistaramótið.

Nordsjælland hafnaði ríflega 20 milljóna evra tilboði frá ensku úrvalsdeildarfélagi fyrr á þessu ári, en danska félagið er ákveðið í að fá að minnsta kosti 30 milljónir evra fyrir leikmanninn. Það yrði metsala úr dönsku úrvalsdeildinni.

Alexander Riget, yfirmaður fótboltamála hjá Nordsjælland, telur að Yirenkyi geti hæglega spilað í bestu deildum heims. Hann hefur þegar öðlast töluverða reynslu á alþjóðavettvangi, en hann á 11 A-landsleiki og eitt mark með Gana.

„Caleb hefur spilað mikið og við höfum lagt ákveðnar áætlanir með honum. Það gæti því vel farið svo að hann verði seldur í sumar, enda hefur hann fest sig í sessi sem einn besti miðjumaður dönsku úrvalsdeildarinnar, þó mér hafi fundist hann svolítið þreyttur undir lok tímabilsins.

Hann er ótrúlega þroskaður. Við erum sammála um að hann þurfi ekki að taka milliskrefið í toppliði í hollensku deildinni eða liði í neðri hluta þýsku úrvalsdeildarinnar. Við teljum hann tilbúinn til að fara beint í eina af fimm stærstu deildunum — og jafnvel aðeins ofar en það,“ sagði Riget um hann í hlaðvarpsþættinum TransferGuru.

Skagamaðurinn Daníel Ingi Jóhannesson er liðsfélagi Yirenkyi hjá Nordsjælland. Daníel spilaði þrjá leiki og lagði upp eitt mark með liðinu á tímabilinu.
Slapp
banner
banner
banner