Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
   fim 15. mars 2012 06:00
Snorri Helgason
Norway cup verður haldið í 40.sinn í sumar
Það verður mikið um dýrðir þegar hið alþjóðlega knattspyrnumót Norway cup verður haldið í Osló í sumar dagana 29.júlí til 4.ágúst.

Mörg íslensk lið hafa tekið þátt á þessu gífurlega vinsæla móti og nú verður haldið upp á 40 ára afmæli þess í sumar.

Mótið er eitt það allra stærsta sinnar tegundar. En í fyrsta skiptið sem mótið var haldið tóku 422 lið þátt. Í dag taka í kringum 1500 lið þátt eða 30.000 leikmenn.

Lið allstaðar að úr heiminum mæta en alls koma lið frá í kringum 50 löndum. Til að mynda fór leikur fram á síðasta ári milli liðs frá Palestínu og Kenýu.

Eins og gengur og gerist á svona mótum er einnig ýmislegt annað um að vera heldur en bara fótbolti. Opnunarhátíðinni er sjónvarpað í beinni útsendingu frá norska ríkissjónvarpinu og þykir það mikið sjónarspil það sem fram fer þar.

Fulltrúar Norway cup voru á landinu í síðustu viku og spjölluðum við á Fótbolta.net við þá, en það má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.

Fyrir þá sem vilja kynna sér mótið frekar geta kíkt inn á heimasíðu keppninnar hér, eða haft samband við íþróttadeild Úrvals Útsýnar.
Slapp
banner