Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
   mið 28. mars 2012 08:00
Arnar Daði Arnarsson
Magnús Gylfason: Eyþór var líklegastur í markið
Magnús Gylfason.
Magnús Gylfason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var nokkuð öruggt fannst mér. Ég var nokkuð sáttur fótboltalega við leikinn í dag, við byrjuðum illa fyrsta korterið en eftir að við náðum að spila boltanum var ég mjög sáttur og þetta var nokkuð öruggt þó að þeir hafi náð þessu marki í lokin," sagði Magnús Gylfason þjálfari ÍBV eftir 3-2 sigur liðsins á Víkingi R. í Lengjubikarnum í gærkvöldi.

Abel Dhaira, markvörður Eyjamanna, meiddist undir lok leiksins en hann harkaði af sér og kláraði 90 mínútur þar sem liðið var ekki með varamarkvörð. ,,Varamarkvörðurinn fékk frí og Eyþór (Helgi Birgisson) var líklegastur í markið," sagði Magnús sem er ánægður með hópinn.

,,Leikmannahópurinn er að þéttast. Breiddin er eitt af því sem við ætluðum að vinna í fyrr þetta tímabil en hún er að verða góð. Það eru nokkrir leikmenn ennþá í burtu og frá vegna meiðsla en þetta týnist saman, það eru ennþá 5-6 vikur í mót og ég held að þetta verði allt klárt fyrir það."

Magnús útilokar þó ekki að Eyjamenn fái frekari liðsstyrk fyrir mót. ,,Við erum aðeins að horfa í kringum okkur og það gæti komið eitthvað á lokakaflanum," sagði Magnús við Fótbolta.net.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner