„Ég er ánægður með þetta, sérstaklega ánægður með að við fengum þrjú stig," sagði Kjartan Henry Finnbogason sem skoraði öll mörk KR í 3-2 sigri gegn ÍBV í kvöld. Öll mörkin komu úr vítaspyrnum.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 ÍBV
Í uppbótartíma fékk ÍBV vítaspyrnu en Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, varði.
„Ég var farinn að gráta bak við varamannaskýlið þegar hann dæmdi vítið en Hannes kom okkur til bjargar, ekki í fyrsta skipti."
Kjartan segir það taka á taugarnar að fara á punktinn. „Jú að sjálfsögðu en þess vegna er maður í þessu, til að fá fiðrildi í magann og spennuna."
„Við höfum fengið á okkur sjö mörk í þremur leikjum og það er vissulega áhyggjuefni. Við megum ekki byrja seinni hálfleikinn svona á hælunum."
Kjartan gaf þeim sem eru með hann í Fantasy-liðinu sínu urmul af stigum í kvöld. „Ég er líka hættur að fá gul spjöld svo treystið á mig," voru skilaboð Kjartans til Fantasy-spilara.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.





















