,,Þetta voru gríðarlega sæt þrjú stig. Það er alltaf erfitt að spila við Fylki, þær berjast fram í rauðan dauðann svo það er gott að ná í þessi þrjú stig," sagði Elísa Viðardóttir leikmaður ÍBV í fyrrakvöld eftir að liðið vann Fylki 3-0.
,,Mér fannst við berjast meira en við höfum verið að gera. Vantar þó ennþá aðeins meira en það. Svo spiluðum við flottan bolta og varnarleikurinn er að komast í lag."
,,Við hefðum mátt klára færin betur og berjast betur."
























